kiddivillaprebb.blogspot.com
nýr titill: maí 2007
http://kiddivillaprebb.blogspot.com/2007_05_01_archive.html
Fimmtudagur, maí 31, 2007. Nú er stutt í að prófin hefjist en það fyrsta byrjar 5 júní, en svo er ég ekki búinn fyrr en 25. en þá er vörnin fyrir verkefnið. Við kláruðum loksins skýrsluna í gær og skáluðum í kampvíni í tilefni dagsins. En þá er bara að byrja að lesa. Svo átti Hrafnhildur Ýr afmæli í gær. Til Hamingju með það Hrafnhildur mín, og kærar kveðjur heim. Posted by Kiddi at fimmtudagur, maí 31, 2007. Fimmtudagur, maí 10, 2007. Posted by Kiddi at fimmtudagur, maí 10, 2007.
kiddivillaprebb.blogspot.com
nýr titill: nóvember 2006
http://kiddivillaprebb.blogspot.com/2006_11_01_archive.html
Föstudagur, nóvember 17, 2006. Nú lítur allt út fyrir að ég komi heim yfir hátíðirnar. Ég á pantað flug frá Kaupmannhöfn 19. desember og aftur til Danmerkur þann 30. Eftir það tekur við prófatörnin sem endar 17. janúar. Ég var að sjá sýnishorn úr Mýrinni og ég verð að segja að ég er soldið spenntur yfir að sjá hana. Posted by Kiddi at föstudagur, nóvember 17, 2006. Skoða allan prófílinn minn. Íslendingafélagið á Norður Jótlandi. Hér kemur bráðum ný færsla.
kiddivillaprebb.blogspot.com
nýr titill: október 2006
http://kiddivillaprebb.blogspot.com/2006_10_01_archive.html
Laugardagur, október 21, 2006. Um kvöldið fékk ég svo að smakka á Elgskjöti, en það er afar bragðmikið kjöt. Morgunin eftir fórum við í smá ferð til Kristiansand og skoðuðum okkur um. Við fórum svo heim á Týsdag með ferjunni og vorum komnir heim um fjögurleytið ánægðir með góða ferð. Á morgun er svo sett stefnan á stutta hjólaferð eitthvað út fyrir borgina, meira um það síðar. Góðar stundir. Posted by Kiddi at laugardagur, október 21, 2006. Föstudagur, október 13, 2006. Föstudagur, október 06, 2006.
kiddivillaprebb.blogspot.com
nýr titill: september 2006
http://kiddivillaprebb.blogspot.com/2006_09_01_archive.html
Sunnudagur, september 24, 2006. Ég þarf að fara að venja mig á að skrifa inn á þetta blogg, þýðir ekki að láta fólk reka á eftir sér. Nú eru liðnir rúmir tuttugu dagar síðan ég skrifaði síðast þannig að það er bara best að byrja þar sem ég endaði síðast. Um daginn fór ég á tónleika með hinni þokkafullu Eivoru, og var það mögnuð kvöldstund, Álaborg er mikið menníngarpláss og nóg að gera að sækja hina og þessa tónleikana ef maður er þannig stemmdur. Posted by Kiddi at sunnudagur, september 24, 2006. Iacute...
kiddivillaprebb.blogspot.com
nýr titill: júní 2007
http://kiddivillaprebb.blogspot.com/2007_06_01_archive.html
Fimmtudagur, júní 07, 2007. Var í munnlegu prófi í gær, sem ég náði. Þá eru heil fimm próf eftir þar til þessi önn er búin. Á morgun er skriflegt próf, og síðasta prófið, sem er aðalprófið, er 25. júní. Nú er ég búinn að panta far heim. Ég lendi í Keflavík föstudaginn 29. júní kl. 14:05, að staðartíma. Posted by Kiddi at fimmtudagur, júní 07, 2007. Skoða allan prófílinn minn. Íslendingafélagið á Norður Jótlandi. Hér kemur bráðum ný færsla. Er ekki kominn tími á nýja færslu?
kiddivillaprebb.blogspot.com
nýr titill: janúar 2007
http://kiddivillaprebb.blogspot.com/2007_01_01_archive.html
Föstudagur, janúar 26, 2007. Nú er ég fluttur og nýja íbúðin er heilir 36,70 fermetrar brúttó og líst bara þokkalega vel á staðinn. Á laugardaginn var Tour de Chambres sem er svipað og Tour de Skerjó nema hver og einn er með þema í sínu verelsi. Ég sagði einum útlendingnum að við værum með svipað dót heima, nema við hefðum ekkert þema, "we just drink". Hvað finnst ykkur um að skrifa útí og einsog í einu orði, er það ljót íslenska? Posted by Kiddi at föstudagur, janúar 26, 2007. Sunnudagur, janúar 14, 2007.
kiddivillaprebb.blogspot.com
nýr titill: ágúst 2006
http://kiddivillaprebb.blogspot.com/2006_08_01_archive.html
Miðvikudagur, ágúst 30, 2006. Nú er ég loksins kominn til Álaborgar og búinn að koma mér fyrir í íbúðinni. Flugið gekk ljómandi vel og síðustu daga hef ég verið í góðu yfirlæti hjá Didda og Helle. Diddi er búinn að sýna mér bæinn og koma mér inn í kerfið. Ég er búinn að prófa almenningsvagnana hér og komst að því að ég þarf bara að taka einn vagn beint í skólann sem er geggjað. Posted by Kiddi at miðvikudagur, ágúst 30, 2006. Skoða allan prófílinn minn. Íslendingafélagið á Norður Jótlandi.
kiddivillaprebb.blogspot.com
nýr titill: apríl 2007
http://kiddivillaprebb.blogspot.com/2007_04_01_archive.html
Þriðjudagur, apríl 24, 2007. Eitthvað bank í ofnunum. Annars allt fínt að frétta, er á fullu að vinna í verkefninu. Fréttum það um daginn að bylgjudrekinn okkar hafi rekið á land og engir peningar til að koma honum á flot á ný. En verkefnið heldur áfram fyrir því. Er að reyna að planleggja sumarið, redda mér verkefni á Íslandi í sumar. Posted by Kiddi at þriðjudagur, apríl 24, 2007. Sunnudagur, apríl 15, 2007. Í sól og Sumaryl. Berlín var síðasta stoppið og vorum við orðin afar þreytt eftir ferðina. ...