alfheidurileiden.blogspot.com
Lífið í Leiden: September 2008
http://alfheidurileiden.blogspot.com/2008_09_01_archive.html
Friday, 26 September 2008. Aðalfrétt síðustu daga er að við fundum nýtt þak yfir höfuðið. Skruppum á þriðjudaginn til Amsterdam Noord, kíktum á aðstöðuna og gengum út með húslykil og lofuðum að borga leiguna. Þessi íbúð er svo stærsta sem við höfum verið í hér úti, aukaherbergi og allt! Núna er því tíminn að koma í heimsókn. Þvottavél og þurrkari, baðker, þráðlaust internet og dadarada . ofn! Endum svo skoðunartúrinn á að horfa á skylmingarþræla berjast í hringleikahúsinu á tímum Rómverja. Við spiluðum a...
alfheidurileiden.blogspot.com
Lífið í Leiden: Safnanótt
http://alfheidurileiden.blogspot.com/2008/11/safnantt.html
Sunday, 2 November 2008. Í gær var safnanótt hér í Amsterdam. Við keyptum okkur miða og útbjuggum (ég semsagt) mjög metnarfulla dagskrá - nú átti aldeilis að sjá mörg söfn og vera á ákveðnum stöðum og ákveðnum tímum til að hlusta á tónlist eða sjá aðrar uppákomur. Næst skunduðum við á Rijksmuseum til að sjá hið rosa fræga verk Damien Hirst "For the love of God" og meistara Rembrandt. Fyrir utan var dágóð röð sem virtist ganga nokkuð hratt svo við ákváðum að skella okkur í röðina. Eftir klukkutíma...Eftir...
alfheidurileiden.blogspot.com
Lífið í Leiden: Gaman
http://alfheidurileiden.blogspot.com/2008/11/gaman.html
Wednesday, 12 November 2008. Í gær var dagur St. Martin en þá ganga börn um með ljósaker eða luktir, banka uppá hjá fólki og syngja lög um þennan blessaða Martin og fá nammi í staðinn. Þegar ég hjólaði heim sá ég fullt af krökkum með ljósaker sem þau höfðu mörg greinilega gert sjálf - mjög skemmtilegt. Þegar ég kom heim sagði Jón að það hefði enginn bankað hjá okkur - sem betur fer. Við áttum sko ekkert nammi til að gefa - var alveg tilbúin að afsaka mig "sorry, geen snoepjes" en það slapp til.
alfheidurileiden.blogspot.com
Lífið í Leiden: May 2008
http://alfheidurileiden.blogspot.com/2008_05_01_archive.html
Friday, 30 May 2008. Eftir endalausan vetur með alvöru óveðri og sprengju rétt hjá íbúðinni okkar kemur stór jarðskjálfti! Alltaf missir maður af einhverju. Ekki að það sé neitt mjög jákvætt við að lenda í jarðskjálfta heldur er það bara svo merkilegt. Ég man vel hvað ég var að gera í skjálftanum 17. júní 2000. Hér í Hollandi er helst í fréttum að Jón flaug heim á miðvikudag og skildi mig eftir eina í kotinu. Sem þýðir að það er ennþá erfiðara að vakna á morgnana, ekki alveg mín sterka hlið. Fékk að horf...
alfheidurileiden.blogspot.com
Lífið í Leiden: February 2008
http://alfheidurileiden.blogspot.com/2008_02_01_archive.html
Friday, 29 February 2008. McDonalds auglýsir á fullu í sjónvarpinu nýjasta nýtt; hamborgara með súrkáli (sauerkraut). Mmm girnilegt ekki satt? Ánægjustunur bárust frá sambýlismanninum þegar ég bar á borð flatkökur með hangikjötsáleggi með grjónagrautnum í vikunni. Í fleirtölu. Í útlöndum þarf ekki mikið til að gleðja mann :). Monday, 25 February 2008. Nóg að gerast, tíminn flýgur auðvitað hraðar áfram en nokkurn tíma fyrr. Er það ekki alltaf svoleiðis? Drengirnir er einstaklega vel upp aldir og fékk ég b...
alfheidurileiden.blogspot.com
Lífið í Leiden: August 2008
http://alfheidurileiden.blogspot.com/2008_08_01_archive.html
Wednesday, 27 August 2008. Tíminn líður og komið að næsta brúðkaupi. Og það gerist ekkert? Hvort er það eins og í Gleðibankanum eða Meistaranum og Margarítu? Ég hef hreinlega ekki undan að skrifa fréttir héðan úr Leiderdorp. Afmælisdagurinn var afar ljúfur, fékk nýtt brauð og kökusneið í morgunmat, Jón bæði eldaði og bakaði pönnukökur og Wim og Marielle komu í kaffi. Jón neitaði að fara með mig neitt þar sem ég myndi bara detta á hausinn. Auk okkar voru líka nokkrir Ítalir og Grikkir í mat. Fræddum lýðin...
alfheidurileiden.blogspot.com
Lífið í Leiden: Nýta tímann
http://alfheidurileiden.blogspot.com/2008/11/nta-tmann.html
Monday, 17 November 2008. Þegar dögunum hér í Amsterdam fækkar hratt þá er nauðsynlegt að nýta tímann vel. Á laugardaginn litum við því upp frá tölvuskjánum og fórum við á Van Gogh safnið og sáum James Bond í Tuschinki bíóinu. Að fara í bíó í Tuschinki er meira eins og að fara í leikhús heldur en í bíó. Húsið sjálft á sér merkilega sögu og er í afar sérstökum stíl. Salirnir og reyndar allt húsið er mjög flott og þeir sem eru forvitnir geta séð mynd af salnum sem við fórum í hér http:/ www.pat...Við tímdu...
alfheidurileiden.blogspot.com
Lífið í Leiden: November 2008
http://alfheidurileiden.blogspot.com/2008_11_01_archive.html
Thursday, 20 November 2008. Hver man ekki eftir gríðarlega vísindalegum og flóknum útreikningum á ástarprósentum? Hægt var að sjá á milli hverra var mest ást með að reikna prósentur á milli nafnanna á afar flókinn hátt. Það einfaldaði málin að sjálfsögðu að vita hvaða strákum tók ekki að vera skotin í, best að einbeita sér að gaurnum sem gaf bestu prósentuna. Í auglýsingunni sést stelpa og strákur á bar, hún sendir sms og úff fær 9% tilbaka! Monday, 17 November 2008. Með miðanum á safnanótt sem við fórum...
alfheidurileiden.blogspot.com
Lífið í Leiden: January 2008
http://alfheidurileiden.blogspot.com/2008_01_01_archive.html
Thursday, 31 January 2008. Kannski er ekki sanngjarnt að kvarta yfir veðrinu svona miðað við veðrið á Íslandi síðustu vikur en ég geri það samt! Hitinn var farin að vera 10 gráður dag eftir dag en núna kólnaði í um eina gráðu og í dag var helvítis rigning og slydda. Öldugangur í síkjunum og allt. Ein vika í að friðurinn sé úti. Friday, 25 January 2008. Kemur skapinu í lag! Las Ösku eftir Yrsu á miðvikudag og Harðskafa í gær. Er að hugsa um að byrja ekki alveg strax á næstu bók, kannski bara á morgun.
alfheidurileiden.blogspot.com
Lífið í Leiden: July 2008
http://alfheidurileiden.blogspot.com/2008_07_01_archive.html
Monday, 28 July 2008. Móskítóflugurnar halda áfram að japla á mér en með ofnæmistöflur í annarri og krem í hinni þá tekst mér að halda bitunum ágætlega niðri. Klæjar samt alveg nóg. Keypti svo í dag moskítófælu sem maður stingur í samband og á að gefa frá sér hátíðnihljóð sem heldur flugunum í burtu. Eleni sagði að það virkaði og nú er bara að bíða og sjá. Í þessu bíó er ekki hægt að fá popp, í staðinn getur maður fengið sér flögur með gosinu. Eða bara fengið sér bjór eða rauðvín. Tuesday, 22 July 2008.