alpaprinsessa.blogspot.com
Lísa
http://alpaprinsessa.blogspot.com/2008/09/g-tti-afmli-gr.html
Fimmtudagur, september 04, 2008. Ég átti afmæli í gær. Ég er orðin 29. Tuttuguogníu! TUTTUGUOGNÍU. Hvað gerðist eiginlega? Ég var 25, svo alltíeinu er ég 29. Næst verð ég 30 og ég er ekkert tilbúin, vill einhver kenna mér á bremsuna takk. Ég var samt spurð um skilríki á Hressó í gær og hresstist aðeins við það. Ég slasaði mig um daginn, sneri á mér ökklann og get varla gengið. Viðbrögð fólks finnast mér mjög athyglisverð. Flestir spurja: jæja vinan, varst þú kannski að skemmta þér um helgina?
alpaprinsessa.blogspot.com
Lísa
http://alpaprinsessa.blogspot.com/2008/07/bin-vera-skoa-gamlar-myndir-einusinni.html
Miðvikudagur, júlí 30, 2008. Búin að vera að skoða gamlar myndir, einusinni var Kisamín svona:. Mesta krútt í heiminum! Hún var bara 300 grömm og passaði í lófann á mér. Hér er svo nýleg mynd af okkur Kisumín, N.B. hún breytti um lit fyrir mig til að vera meira í stíl. Ég kem svo heim eftir viku veiveivei , hér eru myndir af okkur systkinum teknar í dinner áðan á ströndinni í Juan les Pins:. Posted by Lísa : 20:49. Daníel, Guðbjörg og Emilía. Köben, brúðkaup ofl.
alpaprinsessa.blogspot.com
Lísa
http://alpaprinsessa.blogspot.com/2008/07/nokkrar-fleiri-random-myndir-fr-kimi.html
Mánudagur, júlí 14, 2008. Nokkrar fleiri random myndir frá Kimi, S'il vous plait. Fór með krakkana mína. (kára og frú) í rennibrautagarð í dag og sýndi þeim svo Cap d'Antibes, aðsetur Abramovtich ofl. Stálumst í sund og drukkum svo nokkra kokkteila á ströndinni. Fórum síðan í bæinn (Cannes) og horfðum á flugelda í tilefni Bastilludagsins. Ekki á sama tíma samt, einhver þarf að vera hér og vinna að sjálfsögðu. Muna svo, www.kimihotel.com. Koma bráðum nýjar myndir. Posted by Lísa : 21:41.
alpaprinsessa.blogspot.com
Lísa
http://alpaprinsessa.blogspot.com/2005_07_01_archive.html
Miðvikudagur, júlí 27, 2005. Í nýju vinnunni minni þarf ég stundum að mæta klukkan 6 á morgnana sem þýðir að ég þarf að vakna klukkan 5! Það er samt ekki eins erfitt og ég hélt, og eiginlega bara ljómandi að 8 tíma vinnudagur sé búinn klukkan 13.00 og allur dagurinn eftir. Frænka er byrjuð að blogga, endilega skoðið hjá henni, þar er sko gott að vera. Posted by Lísa : 06:47. Þriðjudagur, júlí 26, 2005. Uhuuu ég er á biluðum bíl og læst úti og með hálsbólgu og ég kann ekki að spila á píanó.
alpaprinsessa.blogspot.com
Lísa
http://alpaprinsessa.blogspot.com/2004_11_01_archive.html
Mánudagur, nóvember 29, 2004. Ég er alveg að verða búin að pakka og á eftir ætla á ég að fara og kveðja skólann, píanóbekkinn og kennarann. Vonandi fer einhver að grenja:-) Læt vita;). Posted by Lísa : 13:31. Sunnudagur, nóvember 28, 2004. Ég er nefnilega ekki búin að pakka niður rafmagnsbyssuni og piparspreyinu. Talandi um. ætli ég megi taka það með til Íslands? Ég held að ég þurfi að láta athuga á mér hausinn, ég er óendanlega gleymin þessa dagana. Og hina líka. Posted by Lísa : 12:29. Jólagjafakaup er...
alpaprinsessa.blogspot.com
Lísa
http://alpaprinsessa.blogspot.com/2008/07/n-er-g-loksis-bin-merkja-hteli-bjtfl-7.html
Sunnudagur, júlí 13, 2008. Nú er ég loksis búin að merkja hótelið! 7 Allée de la Forêt. Kári og Helga komu með skiltin frá Íslandi í fyrradag, var smá ves með stærra skiltið því festingarnar pössuðu ekki á hliðið, en Smiðsdóttir fann bara sög og massaði þetta. Kári hjálpaði aðeins til. Kári hélt á blýantinum. Svo er þjóðhátíðadagur frakka í dag, erum að spá í að halda upp á hann í Aquasplash. Posted by Lísa : 17:39. Daníel, Guðbjörg og Emilía. Köben, brúðkaup ofl.
alpaprinsessa.blogspot.com
Lísa
http://alpaprinsessa.blogspot.com/2008/07/ok-sm-myndalengja-hr-segi-mr-svo.html
Miðvikudagur, júlí 16, 2008. OK smá myndalengja hér, segið mér svo hverjar ykkur líst best á! Fyrir heimasíðuna sko, http:/ www.kimihotel.com/. Var svo heppin að fá Barbí og Ken sem módel og þau stóðu sig með prýði. NB Kári að sulla. Posted by Lísa : 17:25. Daníel, Guðbjörg og Emilía. Köben, brúðkaup ofl.
alpaprinsessa.blogspot.com
Lísa
http://alpaprinsessa.blogspot.com/2004_12_01_archive.html
Miðvikudagur, desember 01, 2004. Næstsíðasti ef ég tel morgundaginn með, en fer um hádegið á morgun. Einusinni (fyrir mörgum árum) var ég að verða of sein í vinnuna og pantaði leigubíl. Svo leið og beið og aldrei kom leigubíll. Á endanum kom í ljós að bölvuð konan í símanum hafði haldið að ég væri krakki að gera símaat og ákveðið að senda engan leigubíl, með þeim afleiðingum að ég varð alltof sein í vinnuna. Posted by Lísa : 07:59. Daníel, Guðbjörg og Emilía. Köben, brúðkaup ofl.
alpaprinsessa.blogspot.com
Lísa
http://alpaprinsessa.blogspot.com/2004_09_01_archive.html
Þriðjudagur, september 28, 2004. Ég get víst ekki lengur látið bloggið heita Lísa í Sviss, hvað þá kallað mig alpaprinsessu! Ætli ég verði ekki að sætta mig við að vera bara óbreytt prinsessa. Nú heitir bloggið einfaldlega Lísa. Ég prufaði fyrst Veröld Lísu en mér fannst eitthvað dónalegt við það. Reyndar held ég að mér takist að sjá eitthvað dónalegt við flest allt bara. Posted by Lísa : 11:11. Sunnudagur, september 26, 2004. Hér er smá sýnishorn úr dagbókinni, við hlógum mest að færslunni 30. júní:.