risinn.blogspot.com
Raggi risi ríður húsum
http://risinn.blogspot.com/2006_02_01_archive.html
Raggi risi ríður húsum. Risinn lætur móðan mása. Fimmtudagur, febrúar 23. Fimmtudagur, febrúar 16. Aðfararnótt 10.feb. framhald. Það tók örskamma stund að finna súlustað enda slíkir staðir á öðru hverju strái þar um slóðir. Þar tók á móti okkur feitur svartur rastafa gaur með síða dredda og urðum við hans bestu vinir um leið og við sögðumst vera frá Íslandi. Hann tók okkur upp á sína arma og vildi allt fyrir okkur. Spurðum því rastafa gaurinn hvort hann vissi um stað er við gætum fengið að. Nú eru liðnir...
yfjar.blogspot.com
um draumalendur lífsins: Draumur á Jónsmessunótt
http://yfjar.blogspot.com/2008/06/draumur-jnsmessuntt.html
Mánudagur, 23. júní 2008. Nú er framundan hin kyngimagnaða Jónmessunótt. Ein þeirra nátta sem samkvæmt þjóðtrúnni er töfrum gædd og huldar verur fara á stjá, óskasteinar birtast á yfirborði jarðar og döggin öðlast lækningarmátt. Ein þeirra fjögurra nátta ársins þar sem allt getur gerst. Þá er best að velja vel hvar dvelja skal á miðnætti. Munu kýrnar mæla sem menn? Verða huldufólk og álfar á vegi þess er dvelur á krossgötum? Munu óskasteinar glóa í þeirri von um að einhver rambi fram á þá? Ja, hver veit?
risinn.blogspot.com
Raggi risi ríður húsum
http://risinn.blogspot.com/2006_06_01_archive.html
Raggi risi ríður húsum. Risinn lætur móðan mása. Mánudagur, júní 19. Mánudagur, júní 5. Annars lítt að frétta af oss. Bý enn einn með hægri hönd minni ( gott að geta haft konuna í vasanum) Hef þó jafnvel í hyggju að leggja stund á nám í haust, kem væntanlega með nánari fréttir af því þegar námið er búið ef áfram heldur með þessi tíðu skrif mín. Veriði sæl að sinni. Skoða gestabók. Skrifa í gestabók.
risinn.blogspot.com
Raggi risi ríður húsum
http://risinn.blogspot.com/2006_03_01_archive.html
Raggi risi ríður húsum. Risinn lætur móðan mása. Laugardagur, mars 18. Það virðist hafa sest illa í mig að hafa farið til Bretlandssskíris. Hef ekki stunið uppúr mér staf í margar vikur og er svosem öngvin sérstök ástæða fyrir því. London endaði s.s á því að við vorum rændir af hollensku mafíunni og ég tekinn hálstaki af einhverjum villimanni. Er nú búinn að liggja í heila viku í pest og hósta úr mér lungum og lifrum, guði sé lof fyrir 70 sjónvarpsstöðvar! Skoða gestabók. Skrifa í gestabók.
yfjar.blogspot.com
um draumalendur lífsins: Komin á ról
http://yfjar.blogspot.com/2008/06/komin-rl.html
Sunnudagur, 22. júní 2008. Jæja, þá er ég vöknuð úr dvala og komin á ról. Það er vel við hæfi að byrja á að setja inn nokkrar myndir úr síðasta göngutúrnum mínum, sem ég fór um skjálftasvæðið á suðurlandi á dögunum. Víða mátti sjá skriður og grjóthrun, þetta bjarg setti svip sinn á austurhlíð Ingólfsfjalls. Skemmtilegar hraðahindranir á slóðanum undir Ingólfsfjalli sunnan til. Kyrrlátt yfir að líta titrandi jörð. Loksins fór eitthvað að gerast á þessari síðu.hehe. 23 júní 2008 kl. 00:17.
yfjar.blogspot.com
um draumalendur lífsins: Grímsey
http://yfjar.blogspot.com/2008/07/grmsey.html
Þriðjudagur, 1. júlí 2008. Seinni part dagsins var svo farið til að taka á móti bátunum, þangað mættu allir, stórir sem smáir. Bryggjan iðaði af mannlífi þegar komið var í höfn með sjóbarða veiðimennina og aflanum var landað meðan sígild sjómannalög ómuðu í bakgrunni. Mæli með Grímsey við alla sem ekki hafa látið af verða að koma þangað! Gerast áskrifandi að: Birta ummæli (Atom). Chris´s Scotland diary. Eitt ónefnt úr eldra safni.
yfjar.blogspot.com
um draumalendur lífsins: maí 2007
http://yfjar.blogspot.com/2007_05_01_archive.html
Fimmtudagur, 24. maí 2007. Þriðjudagur, 22. maí 2007. Svífur sál mín endurborin. Hafði mér birzt hin fagra ásjóna. Er hafði fjötrað mig í draumi. Af viðskilum hjarta míns. Er hún sveik mig. Til að vernda mig sannleikanum. Er annars myrkvaði mér sýn. Leika stjörnur um himinhvolf alheimsins. Við blikandi bál örlaganna. Og framtíðin er rituð. Í reykbólstrana er líða til himins. Og handan fjallanna býr mannkyn eitt. Þar sem stjörnurnar halda þögn sína. Og örlagabálið hefur slokknað. Reisa segl sín við höfnina.
yfjar.blogspot.com
um draumalendur lífsins: Úr gönguferðum
http://yfjar.blogspot.com/2007/06/r-gnguferum.html
Mánudagur, 11. júní 2007. Mér þykir ákaflega gaman að ganga. Og nú er ég loks farin að muna eftir að taka blessaða myndavélina með :). Hér eru einhverjar myndir úr umhverfi Eyjafjarðar síðusta göngutúra :). Þessi er tekin af bæjarhúsinu á Skipalóni. Hér má líta hlaðið að Skipalóni, notalegt, sögulegt og barnvænt umhverfi það. Þessi er tekin í hlíðum Vaðlaheiðar, gegnt Akureyri. Þessi lækur hverfur brátt undir vegagerð að miklu leiti. Hæ hæ bara að prófa. 13 júní 2007 kl. 02:12. 13 júní 2007 kl. 11:56.
yfjar.blogspot.com
um draumalendur lífsins: Sumarsólstöður
http://yfjar.blogspot.com/2008/06/sumarslstur.html
Miðvikudagur, 25. júní 2008. Ég á það til að taka mig upp um sumarsólstöður og skreppa í útilegu í Skagafjörðinn til að njóta útsýnisins og náttúrunnar, tjalda einhversstaðar í grennd við ættaróðalið og tæma hugann algerlega fjarri allri mannlegri umferð. En ég gerði meira en að sofa þarna í náttúrunnar paradís. Það þætti nú ekki við hæfi annað en að smella nokkrum myndum af dásemdunum, þar sem sólin leikur sér í einfaldleika sínum og varpar nýju ljósi á allt umhverfið. 28 júní 2008 kl. 13:44.