bekks.blogspot.com
ÞAÐ GEFUR Á BÁTINN...
http://bekks.blogspot.com/2003_10_26_archive.html
ÞAÐ GEFUR Á BÁTINN. Föstudagur, október 31, 2003 : :. Sól og frost - Akureyrarveður. Það marrar í snjónum í frostinu - kjörið veður til útivistar. Fara út, anda djúpt og hreinsa inniverurykið úr lungunum. Nýr líkami - ný sál. Í kvöld eru Rússíbana-tónleikar í Salnum í Kópavogi - fyrstu tónleikar Rússíbana eftir fráfall Einars. Þangað ætla ég. Posted by Bergthora at 5:27 e.h. Fimmtudagur, október 30, 2003 : :. Fyrst upplýsingar um lottóvinningshafann eru komnar um allt blogg, allan heim og víðar vil eg ta...
bekks.blogspot.com
ÞAÐ GEFUR Á BÁTINN...
http://bekks.blogspot.com/2003_05_11_archive.html
ÞAÐ GEFUR Á BÁTINN. Föstudagur, maí 16, 2003 : :. Mér fannst gaman að frétta að Dorrit og Ólafur Ragnar skyldu hafa gengið í hnapphelduna á afmælinu hans í fyrradag. Smekklega gert! Ég óska þeim til hamingju! Ég hélt að þau myndu aldrei láta verða af þessu, að þau myndu sitja í festum fram á ævikvöld. Þórdís frænka glögg að sjá í gegnum hamingjusvipinn á forsetanum í sjónvarpsviðtalinu! Posted by Bergthora at 1:40 e.h. Mér finnst allir vera að gera svo skemmtilega hluti, vera á ferðinni hingað og þangað,...
bekks.blogspot.com
ÞAÐ GEFUR Á BÁTINN...
http://bekks.blogspot.com/2003_09_07_archive.html
ÞAÐ GEFUR Á BÁTINN. Fimmtudagur, september 11, 2003 : :. Ég er búin að fara minn daglega blogg-hring. Enginn búinn að blogga í dag nema Jóhanna, sem er alltaf jafn skemmtileg og elskuleg. Og svo myndarleg! Ég fann ilminn af bakstrinum hjá henni af skjánum. Svo verslar hún líka í Bónus og hjálpar svo ótal mörgum til að styðja við velgengni og einkaneyslu ráðamanna þar, sem er ekki af skornum skammti og í nokkuð öðru formi en hjá almenningi þessa kalda lands. P S Ég bakaði bollur í gærkvöldi og eitt brauð!
bekks.blogspot.com
ÞAÐ GEFUR Á BÁTINN...
http://bekks.blogspot.com/2003_07_13_archive.html
ÞAÐ GEFUR Á BÁTINN. Miðvikudagur, júlí 16, 2003 : :. Ég fór í Nóatún í Smáralind í gær, sem er ekki í frásögur færandi, nema þegar ég renni inn á planið tek ég eftir því að búið er að koma fyrir dálitlu tívolí á stórum hluta bílastæðanna. Þetta virtist ekki koma að sök fyrir viðskiptavini, því að nóg var eftir af stæðum. Annað hvort eru stæðin of mörg eða viðskiptavinir of fáír. Posted by Bergthora at 4:33 e.h. Þriðjudagur, júlí 15, 2003 : :. Það er rólegt í vinnunni núna, margir farnir í frí og aldrei e...
bekks.blogspot.com
ÞAÐ GEFUR Á BÁTINN...
http://bekks.blogspot.com/2003_07_06_archive.html
ÞAÐ GEFUR Á BÁTINN. Föstudagur, júlí 11, 2003 : :. Það er hálfgerð bloggleti í fólki þessa stundin, nema Bergþóru dóttur minni, sem tilkynnir reglulega á fjölskyldublogginu að hún sé að fara í sumarfrí. Þegar ég skrifa þessi orð er stundarfjórðungur í sumarfrí hjá henni og fylgifiskum. Það er verst að nú fellur niður bloggið hjá henni næstu vikurnar. Mér skilst að Ragnheiður komi til starfa eftir helgi, svo að áfram verða fréttir í beinni frá þeirra server. Posted by Bergthora at 6:07 e.h.
bekks.blogspot.com
ÞAÐ GEFUR Á BÁTINN...
http://bekks.blogspot.com/2003_10_05_archive.html
ÞAÐ GEFUR Á BÁTINN. Sunnudagur, október 05, 2003 : :. Erum nýkomin úr ferð norður í Þistilfjörð. Við fylgdum Árna frænda til grafar. Athöfnin var látlaus og virðuleg með hlýju yfirbragði. Alveg eins og hann var. Söknuðurinn gerði áþreifanlega vart við sig þegar staðið var yfir moldum þessa vandaða og trausta manns, sem lifði langa ævi sér og sínum til sóma. Blessuð sé minning hennar. Posted by Bergthora at 10:12 e.h. Posted by Bergthora at 9:58 e.h.
bekks.blogspot.com
ÞAÐ GEFUR Á BÁTINN...
http://bekks.blogspot.com/2003_09_14_archive.html
ÞAÐ GEFUR Á BÁTINN. Þriðjudagur, september 16, 2003 : :. Afmælisgjafirnar voru vatnslitamyndir eftir Þórunni Guðmundsdóttur og Nikulás Sigfússon, sem málar yndislegar myndir. Málaralistin er aukadjobb hjá honum, því hann er eða var hjartaskurðlæknir að aðalstarfi. Hvernig væri að snúa þessu við og standa með litatrönurnar daginn út og daginn inn, en grípa í eins og einn og einn uppskurð á kvöldin og um helgar fyrir vini og kunningja í neyð? Posted by Bergthora at 6:26 e.h. Þuríður og Snorri, vinir okkar ...
bekks.blogspot.com
ÞAÐ GEFUR Á BÁTINN...
http://bekks.blogspot.com/2003_06_08_archive.html
ÞAÐ GEFUR Á BÁTINN. Miðvikudagur, júní 11, 2003 : :. Ástarkvedjur til ykkar allra frá Bekku og Eyjó í Barcelóna. Posted by Bergthora at 11:51 f.h.
bekks.blogspot.com
ÞAÐ GEFUR Á BÁTINN...
http://bekks.blogspot.com/2003_08_17_archive.html
ÞAÐ GEFUR Á BÁTINN. Föstudagur, ágúst 22, 2003 : :. Gunna á ábyggilega eftir að reynast hinn skemmtilegasti bloggari, orðheppin og fyndin, eins og hún á ættir til. Góð viðbót í fjölskyldubloggið. Ég nenni ekki að hafa skoðun á hundamálunum, sem virðast henni ofarlega í huga þessa dagana. Snerra var ekki svona illa upp alin! Lýk vinnudeginum hér með. Góða skemmtun í kvöld hvar sem þið verðið. Posted by Bergthora at 3:18 e.h. Þriðjudagur, ágúst 19, 2003 : :. Var það þetta sem þátturinn átti að snúast um?
bekks.blogspot.com
ÞAÐ GEFUR Á BÁTINN...
http://bekks.blogspot.com/2003_06_29_archive.html
ÞAÐ GEFUR Á BÁTINN. Föstudagur, júlí 04, 2003 : :. FRAMHALDSHUGLEIÐING vegna tilskrifa í tilefni af SMÁHUGLEIÐINGU. Ýmsar tillögur hafa borist vegna feimni minnar við að nota orðið negri (ég hvíslaði þessa síðustu fimm stafi). Blökkumaður minnir í mínum huga alltof mikið á þrælahald. Svertingi - er það í lagi? Veit ekki - virkar niðurlægjandi nú til dags. Hvað er bandaríski sendiherrann á Íslandi? Er James I. Gadsden, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, vinur Samfylkingarinnar? Mætti segja að dóms- og ki...