almabene.blogspot.com
Alma skvísa updeitar: December 2008
http://almabene.blogspot.com/2008_12_01_archive.html
Thursday, December 25, 2008. Ég óska ykkur öllu gleðilegra Jóla kæru vinir! Thursday, December 25, 2008. Wednesday, December 17, 2008. Það er algjör vitleysa að reykja. Brennir peninga með því að kveikja, sígarettunni í ójá brennir heilsunni heheeheh. Syng þetta stundum fyrir Elísu því þá er ég mega pirrandi :). Já í dag eru 130 dagar síðan ég hætti mesta ósið sem ég hef tekið upp! Það gera rúmlega 4 mánuði! Og ég hef sparað mér hátt í 70.000.- kr váá! Wednesday, December 17, 2008. Ég var að flétta í gen...
almabene.blogspot.com
Alma skvísa updeitar: Nýtt ár
http://almabene.blogspot.com/2010/01/nytt-ar.html
Friday, January 8, 2010. Gleðilegt ár elsku þið og takk fyrir það gamla. Fyrir mér þýðir nýtt ár nýtt upphaf á einhverju skemmtilegu og endalok á einhverju öðru. Hvað fylgir 2010 verður spennandi að sjá. Síðasta ár var án efa mitt besta og afkastamesta til þessa. Benedikt Þór kom í heiminn! Ótrúlega fallegur drengur sem ég er svo heppin að eiga :). Annáll síðasta árs verður póstaður inn fljótlega já eða þegar ég finn mér nægan tíma til þess að skrifa hann. Gráhært svín hljómar frekar illa :). Íris og Sin...
almabene.blogspot.com
Alma skvísa updeitar: November 2008
http://almabene.blogspot.com/2008_11_01_archive.html
Sunday, November 30, 2008. He he hann hélt að núna væri ég alvg búin að missa það. En samkomulagið var næsta helgi, sjáum til með það. Hérna er fína nýja rúmið okkar sem við fengum í vikunni. Þvílíkur munur sofum núna alveg eins og englar. Erum þar að leiðandi með 2 önnur rúm til sölu. Viljum gjarnar losna við þau sem fyrstþar sem ekki er hægt að koma fyrir tannstöngli í geymslunni núna. Þetta eru glimmerskór aldarinar. Mér líður eins og öskubusku í þeim . Skál, kerti, jólakúlur. Sunday, November 30, 2008.
almabene.blogspot.com
Alma skvísa updeitar: Sá síðasti slekkur í Leifstöð!
http://almabene.blogspot.com/2009/11/sa-siasti-slekkur-i-leifsto.html
Tuesday, November 10, 2009. Sá síðasti slekkur í Leifstöð! Ég held svei mér þá að þetta endi svona! Án gríns. Ætli það sé einhver til í að taka á móti 370.000 blönkum Íslendingum? Getum við kannski bara flutt öll til Vestmannaeyja og stofnað nýtt ríki? Allavega er ég alveg komin með nóg og miklu meira en það af öllu þessu bulli. Og afsakið að ég segi það þá er Steingrímur Joð óvinsælasti maður lansins um þessar mundir. En hvað ég er nú fegin að hafa ekki kosið hann. ÉG vona að þið hafið það líka. Ég les ...
almabene.blogspot.com
Alma skvísa updeitar: 730 dagar!
http://almabene.blogspot.com/2009/10/730-dagar.html
Tuesday, October 27, 2009. Jebb í dag eru 2 ár eða 730 dagar síðan ég hitti McDreamy á Sólon. Vá hvað þetta er búið að vera fljótt að líða! Það var ekki aftur snúið eftir það þótt þetta hafi nú ekki verið í fyrsta skiptið sem ég sá hann heldur fyrsti planaði hittingurinn hjá okkur. Það voru sko alveg ljón á veginum hjá okkur en það hafði ekkert að segja. Þetta var bara einfaldlega meant to be. Mjög svo góðir 730 dagar. Tuesday, October 27, 2009. Subscribe to: Post Comments (Atom). View my complete profile.
almabene.blogspot.com
Alma skvísa updeitar: January 2009
http://almabene.blogspot.com/2009_01_01_archive.html
Tuesday, January 27, 2009. JÆJA búin að færa mig yfir á almabene.bloggar.is. Endilega sendið mér póst á almadrofn@gmail.com. Eða fáið aðgangsorðið hjá mér á msn eða facebook. Annar smá vísbending Ég, Ólöf og Elísa erum allar með þannig. (eingungis þeir þekkja mig vel skilja þetta). Tuesday, January 27, 2009. Monday, January 26, 2009. Bóndagur and Lítill Ljónsungi. Takk fyrir allar kveðjurnar yndislega fólk! Annars var ég að lesa um stjörnumerkin og litla krílið okkar verður að öllum líkindum Ljón. Litla ...
almabene.blogspot.com
Alma skvísa updeitar: August 2008
http://almabene.blogspot.com/2008_08_01_archive.html
Thursday, August 28, 2008. Herra og frú Sesar. Síðasliðin laugardag var haldin mikil veisla í Kópavoginum þar sem Elísa frænka, vinkona og uppeldissystir gékk í það heilaga með honum Guðna sínum. Athöfnin fór fram í Digraneskirkju og var hin glæsilegasta. Eitthvað hafa brúðhjónin (aðallega brúðurin) horft á Amerískar bíómyndir því heill hópur fylgdi þeim upp að altarinu. Athöfnin var hin fallegasta og var svo efnt til heljarinnar veislu á eftir sem stóð lang fram á nótt. Herra og frú Sesar :). Ég er kæra...
almabene.blogspot.com
Alma skvísa updeitar: October 2008
http://almabene.blogspot.com/2008_10_01_archive.html
Thursday, October 30, 2008. Jæja þá er enn ein vikan senn á enda og aftur að koma helgi. Þessi helgi átti að fara í rólegheit og rómantík hjá okkur skötuhjúum en . nei . síðusta daga hefur ringt inn tilkynningum um afmæli, innflutningspartý, hjálparsveitarstarf og verkefni í vinnunni sem þarf að klára. Þetta er allt að sjálfsögðu á vegum míns yndislega upptekna kærasta. Helst að frétta þessa dagana. Er frekar lítið þar sem ekki mikið annað er gert en vinna og mæta í ræktina. Það eru 55 dagar til jóla.
almabene.blogspot.com
Alma skvísa updeitar: Vettlingar!
http://almabene.blogspot.com/2010/01/vettlingar.html
Sunday, January 17, 2010. Hérna eru vettlingarnir sem ég gerði handa Stefáni og Hildi í jólagjöf. Ég gleymdi að taka myndir af 3 öðrum pörum sem ég gerði :(. Kindur já eða hrútar handa Stefáni. Annars vorum við að koma heim úr Grímsnesinu þar sem við áttum frábæra helgi með góðum vinum. Rauðvín, heitur pottur, spil og góður félagsskapur getur ekki klikkað. Blómálfurinn minn lærði að sitja alveg sjálfur í dag og vá hvað ég er stolt af honum. Hann er náttúrlega bara bestur. Sunday, January 17, 2010.
almabene.blogspot.com
Alma skvísa updeitar: September 2009
http://almabene.blogspot.com/2009_09_01_archive.html
Wednesday, September 30, 2009. Ég og litli blómálfurinn minn komum heim í gær eftir aldeilis fínt frí í Mývantssveit. Sveitin skartar sínu fegursta núna í haustlitunum, reyndar finnst mér þetta alltaf vera fallegasti staðurinn hvort sem það er sumar, vetur vor eða haust. Það var mjög ljúft að koma heim því ég var farin að sakna betri helmingsins míns mikið enda var ég orðin svo spennt eftir að sjá hann að hjartað hamaðist .haha alveg eins og við værum ný byrjuð saman. Vó þetta er altof flókið hjá mér.