tobbihave.blogspot.com
Myrkraverk hugans..
http://tobbihave.blogspot.com/2004_02_01_archive.html
Hetjubloggari og flottur gæi með meiru. Laugardagur, febrúar 28, 2004. Ætla að fremja stílbrot og minnast á þrjár skemmtilegar heimasíður, þar sem ég hef ekki stundað mikið af slíkum tilvísunum og plöggi:. Merkilegar síður, og hjálpa til við að lyfta manni upp í hversdagsgrámóðunni. Posted by hofundur @ 12:02. Hvur fjandinn er þetta. Búið að breyta uppsetningunni á kerfinu og ég kann ekki neitt! Sjáum hvort að þetta virki eins og gamla lookið! Posted by hofundur @ 11:56. Þriðjudagur, febrúar 17, 2004.
tobbihave.blogspot.com
Myrkraverk hugans..
http://tobbihave.blogspot.com/2004_11_01_archive.html
Hetjubloggari og flottur gæi með meiru. Fimmtudagur, nóvember 04, 2004. Ég geng eftir gangi. Gangurinn er of þröngur til að tveir menn geti gengið eftir honum samsíða, þannig að ég geng einn. Það eru engar afgerandi beygjur á ganginum, samt sé ég ekkert greinilega fram fyrir mig né úr áttinni sem ég kem úr. Til eru aðrir sem ganga þennan gang. Þeir ganga líka einir, en margir þeirra sjá dyrnar við enda gangsins, og flestir sjá allt það sem er að baki þeim fjarlægjast. Ég er bara ekki einn af þeim.
tobbihave.blogspot.com
Myrkraverk hugans..
http://tobbihave.blogspot.com/2007_08_01_archive.html
Hetjubloggari og flottur gæi með meiru. Þriðjudagur, ágúst 14, 2007. Nú er hinn snargeðveiki tími þar sem tossar landsins sameinast í lokastressi yfir upptökuprófum, svona rétt áður en haustönnin byrjar. Þar sem ég hef aldrei verið mikið fyrir skynsamlegar ákvarðanir er ég í hópi tossanna, og ber höfuð bara nokkuð hátt. Fyrst ég er byrjaður að sóa tímanum í vefbókarskrif verð ég að skammast yfir þróun í bloggsamfélagi mörlandans. Nennir einhver að lesa það? Mér finnst ég vera svo sniðugur.
tobbihave.blogspot.com
Myrkraverk hugans..
http://tobbihave.blogspot.com/2006_07_01_archive.html
Hetjubloggari og flottur gæi með meiru. Föstudagur, júlí 07, 2006. Vinablogg, vol. I. Arnari Steini kynntist ég þegar ég var í leikskóla, og þá vorum við engir vinir. Síðan hættum við að vera óvinir og fljótlega eftir það fórum við að gera allt vitlaust. Mikið var brallað, og þegar það fór svo að ég ákvað að skipta um bekk, sex ára, sagði ég að ég vildi vera með Arnari í bekk. Mér varð ekki haggað, og ég endaði í bekk með honum, þrátt fyrir að ég væri árinu yngri en hann. Posted by hofundur @ 22:05.
tobbihave.blogspot.com
Myrkraverk hugans..
http://tobbihave.blogspot.com/2006_08_01_archive.html
Hetjubloggari og flottur gæi með meiru. Sunnudagur, ágúst 13, 2006. Stundum snerta lög strengi í manni, kveikja upp gamla tilfinningu eða minningu. Þetta geta verið alls konar minningar; góðar, slæmar, fyndnar eða pirrandi. Þessar minningar tengjast textum eða meiningu laganna ekki neitt, þetta eru bara aðstæður sem límast við tónlist. Posted by hofundur @ 22:28. Anna Lind, stálfjelagi. Gunnar Þór, Tunga. Gunnsa litla stóra systir. Eitthvað nýtt og skemmtilegt.
tobbihave.blogspot.com
Myrkraverk hugans..
http://tobbihave.blogspot.com/2007_10_01_archive.html
Hetjubloggari og flottur gæi með meiru. Föstudagur, október 26, 2007. Loksins er þessum kaflaskiptum náð. Helsti bóklegi hjallinn er að baki og nú tekur við verknám í læknisfræði. Þetta er það sem ég hef beðið eftir í nokkur ár, tilhugsunin um þetta hefur haldið í manni lífinu í viðurstyggilegum lestrartörnum sem hafa átt sér stað fyrir öll prófatímabil, en hjá okkur eru lokapróf þrisvar á önn út af blokkakerfinu. Ég get ekki beðið eftir mánudeginum. Posted by hofundur @ 13:12. Kvikmyndir vs. rokk. Þau e...
tobbihave.blogspot.com
Myrkraverk hugans..
http://tobbihave.blogspot.com/2006_04_01_archive.html
Hetjubloggari og flottur gæi með meiru. Laugardagur, apríl 29, 2006. Myndir hafa bæst við á myndasíðuna mína, hún er neðst í hlekkjunum. Lifið heil og sofið rótt. Posted by hofundur @ 03:09. Fimmtudagur, apríl 27, 2006. Aðalástæðan fyrir þessum pistli er að ég er kominn með leið á pistlinum sem er hér fyrir neðan. Ég gæti alveg líka eytt honum, en þá væri ég að ritskoða mig í fyrsta skipti hérna á síðunni (stafsetningarvillur eru undanskildar því) og það fíla ég ekki. En af hverju er ekkert vaktaálag?
tobbihave.blogspot.com
Myrkraverk hugans..
http://tobbihave.blogspot.com/2004_09_01_archive.html
Hetjubloggari og flottur gæi með meiru. Miðvikudagur, september 08, 2004. Ég man þegar ég var yngri, þegar háskólanám var fjarlægur draumur. Það var eitthvað svo exótískt og framandi við Háskólann, þennan gráa steypukumbalda sem gleypti svo mikið af stálpuðum krökkum og skilaði fullorðnu fólki til baka. Eitthvað rosalegt hlaut að ganga á innan veggja slíks bákns, eitthvað stórfenglegt sem greinilega lét engan snortinn, enda voru þeir sem gengið höfðu í háskóla allir eitthvað svo fullorðnir.
tobbihave.blogspot.com
Myrkraverk hugans..
http://tobbihave.blogspot.com/2006_06_01_archive.html
Hetjubloggari og flottur gæi með meiru. Sunnudagur, júní 18, 2006. Einu sinni var ég kallaður myndapési. Mér fannst það gaman. Ég var líka einu sinni (eða tvisvar) kallaður skíthæll. Það var ekki eins gaman. Posted by hofundur @ 22:29. Anna Lind, stálfjelagi. Gunnar Þór, Tunga. Gunnsa litla stóra systir. Eitthvað nýtt og skemmtilegt.