franska-gallia.blogspot.com
Gallía: Nýja árið
http://franska-gallia.blogspot.com/2006/01/nja-ri.html
Sunnudagur, janúar 15, 2006. Loksins komið nýtt ár með nýjum Gallíu viðburðum. 20janúar kl 19.00 er Túnis fundur, kosið um með hvaða flugfélagi eigi að fljúga og svona stiklað á stóru varðandi ferðina. 20janúar kl 20 er fyrsta partý annarinnar, vín ostar í boði félagsins, skemmtun í boði kennara og stiklað á stóru varðandi starfið þessa önnina. Báðir viðburðir haldnir í húsnæði Alliance á Tryggvagötunni. Hlökkum til að sjá ykkur! Posted by Gallía @ 21:03. Ég mæti í parý. Alliance partý janúar 2006.
franska-gallia.blogspot.com
Gallía: Gleðilegt sumar!
http://franska-gallia.blogspot.com/2006/05/gleilegt-sumar.html
Föstudagur, maí 12, 2006. Þakka ykkur kærlega fyrir yndislegan vetur, þetta hefur verið alveg frábært og þið eruð skemmtilegasta fólk í heimi. Nú er sumarið komið og hluti okkar á leið út á vit ævintýranna. Þið sem enn hafið ekki ferðast með okkur, örvæntið ekki, í gær var ákveðið að stofna ferðaklúbbinn Gallíu og ferðast saman árlega á frönskumælandi slóðir. Áfangastaðir eins og Suður Frakkland, Martinique og Sénegal voru nefnd á nafn í gær, hver veit hvert við förum næst! Bið að heilsa ykkur í bili!
franska-gallia.blogspot.com
Gallía: Loksins loksins
http://franska-gallia.blogspot.com/2005/10/loksins-loksins.html
Mánudagur, október 17, 2005. Það eru komnar inn myndir frá nýnemakvöldinu, linkur í horninu hægra megin. Kostaði blóð svita og tár en ég er búin að læra að gera þetta sjálf þannig að vonandi get ég græjað þetta hraðar í framtíðinni! Posted by Gallía @ 22:18. Kúl myndir :) Hlakka til að sjá sem flesta á föstudaginn í Borgarleikhúsinu. Alliance partý janúar 2006. Myndir frá Grillveislu 2005. Myndir frá Nýnemakvöldi 2005. Myndir frá Parísarför 2005. Myndir frá Árnes útilegu 2005. Franska sendiráðið á Ísl.
franska-gallia.blogspot.com
Gallía: Sigurvegar ef svo má segja
http://franska-gallia.blogspot.com/2006/01/sigurvegar-ef-svo-m-segja.html
Þriðjudagur, janúar 17, 2006. Sigurvegar ef svo má segja. Verð að segja að ef það hefðu verið veitt verðlaun fyrir flottustu búningana, þá hefðu Guðni og Þórður unnið, en þeir mættu sem Zoolander og Hansel held ég að hann hafi heitið hinn! Http:/ i10.photobucket.com/albums/a122/gallia-franska/grimuparty/Picture041.jpg. Svo eru fáir búnir að staðfesta mætingu á föstudaginn, vona samt að allir ætli að koma! Posted by Gallía @ 16:02. Inga Huld var líka geggjað flott sem Marilyn Monroe! Des pages de Paris.
franska-gallia.blogspot.com
Gallía: Bíó og kaffihús
http://franska-gallia.blogspot.com/2006/03/b-og-kaffihs.html
Fimmtudagur, mars 02, 2006. Hittumst í bíó á sunnudaginn, tveir fyrir einn á franska mynd, sendi lýsinguna í tölvupósti. Háskólabíó, kl 17.45. Svo kaffihúsakvöld, fimmtudaginn 9.mars kl 20.00 á Stúdó. Svo er ég að vinna myndir frá hinu margrómaða tækjakvöldi okkar stúlknanna en einungis takmarkað magn mun rata hingað inn þar sem þær eru stranglega bannaðar! Þetta var mjög skemmtilegt kvöld, mikið hlegið, mikið kjaftað og á ég að þora að segja það, MIKIÐ VERSLAÐ! Posted by Gallía @ 18:27.
franska-gallia.blogspot.com
Gallía: Talandi um....
http://franska-gallia.blogspot.com/2006/02/talandi-um.html
Laugardagur, febrúar 18, 2006. Að koma, sjá og sigra! Við Túnisstúlkur slógum í gegn í Kolaportinu í dag, seldum fyrir metupphæð og ekki er enn allt búið því nóg var af dóti til að taka morgundaginn líka og því getið þið enn komið og kíkt á okkur! Elska að vera í þessari deild með ykkur, þið eruð öll ógisslega töff skilurðu! Svo látum við bara taka þetta upp á spólu fyrir okkur! Posted by Gallía @ 22:37. Alliance partý janúar 2006. Myndir frá Grillveislu 2005. Myndir frá Nýnemakvöldi 2005.
SOCIAL ENGAGEMENT